#AÐVENTUJÓGA – taktu þátt í jóga áskorun

Aðventujóga

Taktu þátt í AÐVENTULEIK Yoga með Eygló og þú gætir staðið uppi sem sigurvegari!

Á hverjum mánudegi fram að jólum verður kynnt ný æfing vikunnar  🤸🙏
Fylgstu með á FB og insta: @yogamedeyglo

ÞÚ tekur þátt með því að pósta mynd af þér í stöðunni með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA inn á FB eða Instagram. Notaðu ímyndunaraflið og leyfðu þér að vera skapandi með stöðuna og þú gætir staðið uppi sem sigurvegari!🏆🥇

Nýr sigurvegari tilkynntur á hverjum aðventu-sunnudegi!

VINNINGAR eru ekki af verri endanum: kort í jóga hjá Eygló, inneignir hjá Pure Deli og fatnaður frá Brandson!

Smelltu like við síðuna á FB og Instragram @yogamedeyglo , póstaðu myndinni þinni og fylgstu með!

Fyrsti …

sunnudagur í aðventu er á næsta leiti. Frá og með núna og þangað til á miðnætti 2. des verður hægt að pósta mynd með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA á Facebook eða Instagram. Sú eða sá sem póstar skemmtilegustu og/eða frumlegustu myndinni mun standa uppi sem sigurvegari.

 

AÐVENTUJÓGA

AÐVENTUJÓGA VIKUNNAR: Hliðarplanki

Þessi æfing er aðallega styrktaræfing og er góður grunnur fyrir margar aðrar æfingar. Í þessari æfingu styrkjum við marga vöðva samtímis og hún er gjarnan nefnd sem ein „heitasta“ staðan í jóga af þeim sökum. Reyndu að halda æfingunni í 5 andardrætti á hvorri hlið.

Styrkir:

  • handleggi
  • axlir
  • bak
  • kvið
  • fótleggi

Leggur álag á:

  • úlnliði
  • axlir

Farðu varlega inn í stöðuna ef þú glímir við vandamál á þessum svæðum.

Mundu að anda eðlilega á meðan þú heldur stöðunni.

Nú er komið að þér!

  1. Komdu þér fyrir í stöðunni – vertu frumleg/ur en ekki taka neina áhættu 🙂
  2. Smelltu af mynd (eða biddu einhvern um að smella af fyrir þig)
  3. Póstaðu myndinni á Facebook eða Instagram með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA
  4. Fylgstu með hvor þú standir ekki uppi sem sigurvegari!

 

Aðstoð?

Viltu heldur fá aðstoð kennara? Bókaðu Jakkafatajóga á vinnustaðinn eða komdu í jóga með Eygló á kvöldin í Víkurhvarfi 1, Kópavogi.