Aðventjujóga – áskorun – frambeygja

Aðventujóga

Taktu þátt í AÐVENTULEIK Yoga með Eygló og þú gætir staðið uppi sem sigurvegari!

Á hverjum mánudegi fram að jólum verður kynnt ný æfing vikunnar  🤸🙏
Fylgstu með á FB og insta: @yogamedeyglo

ÞÚ tekur þátt með því að pósta mynd af þér í stöðunni með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA inn á FB eða Instagram. Notaðu ímyndunaraflið og leyfðu þér að vera skapandi með stöðuna og þú gætir staðið uppi sem sigurvegari!🏆🥇

Nýr sigurvegari tilkynntur á hverjum aðventu-sunnudegi!

VINNINGAR eru ekki af verri endanum: kort í jóga hjá Eygló, inneignir hjá Pure Deli og fatnaður frá Brandson!

Smelltu like við síðuna á FB og Instragram @yogamedeyglo , póstaðu myndinni þinni og fylgstu með!

Annar…

sunnudagur í aðventu er á næsta leiti. Frá og með núna og þangað til á miðnætti 9. des verður hægt að pósta mynd með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA á Facebook eða Instagram. Sú eða sá sem póstar skemmtilegustu og/eða frumlegustu myndinni mun standa uppi sem sigurvegari.

frambeygja

 

AÐVENTUJÓGA VIKUNNAR: Sitjandi frambeygja

  • Frambeygja teygir á öllum aftanverðum líkamanum; frá hásinum og upp í háls.
  • Farðu eins langt og þér finnst þægilegt
  • Reyndu að halda bakinu beinu eins lengi og þú getur áleiðis inn í frambeygjuna
  • takmarkið er að leyfa enninu að leggjast á sköflungana

Ef þú ert stirð/ur

  • ekki pína þig inn í stöðuna
  • hafðu hnén aðeins bogin
  • haltu undir hné eða kálfa í stað ilja
  • haltu bakinu beinu
  • hafðu frekar örlitla fettu á mjóbakinu

Mundu að anda eðlilega á meðan þú heldur stöðunni.

 Nú er komið að þér!

  1. Komdu þér fyrir í stöðunni – vertu frumleg/ur en ekki taka neina áhættu 🙂
  2. Smelltu af mynd (eða biddu einhvern um að smella af fyrir þig)
  3. Póstaðu myndinni á Facebook eða Instagram með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA
  4. Fylgstu með hvor þú standir ekki uppi sem sigurvegari!

Aðstoð?

Viltu heldur fá aðstoð kennara? Bókaðu Jakkafatajóga á vinnustaðinn eða komdu í jóga með Eygló á kvöldin í Víkurhvarfi 1, Kópavogi.