Aðventujóga – áskorun – Kráka

Aðventujóga

Taktu þátt í AÐVENTULEIK Yoga með Eygló og þú gætir staðið uppi sem sigurvegari!

Á hverjum mánudegi fram að jólum verður kynnt ný æfing vikunnar  🤸🙏
Fylgstu með á FB og insta: @yogamedeyglo

ÞÚ tekur þátt með því að pósta mynd af þér í stöðunni með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA inn á FB eða Instagram. Notaðu ímyndunaraflið og leyfðu þér að vera skapandi með stöðuna og þú gætir staðið uppi sem sigurvegari!🏆🥇

Nýr sigurvegari tilkynntur á hverjum aðventu-sunnudegi!

VINNINGAR eru ekki af verri endanum: kort í jóga hjá Eygló, inneignir hjá Pure Deli og fatnaður frá Brandson!

Smelltu like við síðuna á FB og Instragram @yogamedeyglo , póstaðu myndinni þinni og fylgstu með!

Þriðji…

sunnudagur í aðventu er á næsta leiti. Frá og með núna og þangað til á miðnætti 16. des verður hægt að pósta mynd með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA á Facebook eða Instagram. Sú eða sá sem póstar skemmtilegustu og/eða frumlegustu myndinni mun standa uppi sem sigurvegari.

Kráka

 

 

AÐVENTUJÓGA VIKUNNAR: Kráka

Kráka styrkir

  • Upphandleggi
  • Axlir
  • Efra bak
  • Kvið
  • Innanverð læri

Gæta skal sérstaklega að

  • Úlnliðum
  • Öxlum

Ef þessi svæði eru viðkvæm hjá þér, skaltu fara mjög varlega inn í stöðuna eða jafnvel sleppa henni alveg.

Detta?

Það er gott að vera viðbúin/n því að fara í kollhnís! Hafðu teppi fyrir framan þig þannig að höfuðið lendi á einhverju mjúku ef/þegar þú dettur 🙂 Og mundu…. Fall er fararheill!

Mundu að anda eðlilega á meðan þú heldur stöðunni.

 Nú er komið að þér!

  1. Komdu þér fyrir í stöðunni – vertu frumleg/ur en ekki taka neina áhættu 🙂
  2. Smelltu af mynd (eða biddu einhvern um að smella af fyrir þig)
  3. Póstaðu myndinni á Facebook eða Instagram með hashtagginu #AÐVENTUJÓGA
  4. Fylgstu með hvor þú standir ekki uppi sem sigurvegari!

Aðstoð?

Viltu heldur fá aðstoð kennara? Bókaðu Jakkafatajóga á vinnustaðinn eða komdu í jóga með Eygló á kvöldin í Víkurhvarfi 1, Kópavogi.