Ég mun aldrei…
Ég mun aldrei geta þetta Þegar ég fyrst byrjaði að stunda jóga, fyrir um tíu árum síðan, þá komst ég í kynni við hreyfingar og stöður sem mér hafði aldrei dottið í hug að væru til. Að prófa þær var ennþá fjarlægara. Það sem meira var að stöðurnar báru allar ýmis skemmtileg og stundum framandiheiti, eins og: paradísarfugl, skjaldbaka, úlfaldi, örn,