Afhverju jógaástundun?

Jóga er æfingakerfi sem er um 5000 ára gamalt og á uppruna sinn á Indlandi. Einhver kynni að spyrja hvort þessi aldagömlu fræði ættu við nútímamanneskjuna sem í dagsins önn glímir við alls konar áreiti og sinnir verkefnum alls ólíkum þeim sem Indverjar bjuggu við þegar æfingakerfið var byggt upp.

Staðreyndir er hinsvegar sú að jógafræðin eiga jafnvel við í dag og þá og hugsanlega enn betur, því nú sem aldrei fyrr þarf nútímamaðurinn, sem að öllu jöfnu situr meirihluta dags, að fá útrás fyrir hreyfiþörf sína.

Styrkur, öndun, teygjur og slökun eru allt þættir sem farið er yfir í jógatíma. Gerðar eru æfingar sem reyna á allan líkamann og margir upplifa fyrsta jógatímann sem einskonar uppgötvun á líkamanum þar sem viðkomandi finnur fyrir „nýjum“ vöðvum.

Það sem margir sækja í jógatímana er svo slökunin í lok tímans, en sú stund, eins og jógatíminn reyndar allur, veitir ákveðið frelsi og frí frá amstri dagsins.

Gefðu þér frí – gefðu þér klukkutíma eða tvo á viku í jóga.  Árangurinn mun ekki standa á sér.

Eygló Egils
Jógakennari
ÍAK einkaþjálfari
Metabolicþjálfari í Árbæ